|
Námskeið um Andlega sjálfsvörn
8.apríl 2010
Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi ætlar að bjóða
starfsfólki sínu á fyrirlestur um Andlega sjálfsvörn 8. apríl n.k.
Fyrirlesari er Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar.
Fyrirlesturinn er 40 mínútna langur þar sem farið er yfir gagnlegar leiðir
til að styrkja geðheilsu, forvarnir gegn geðheilsubresti og
grundvallaratriði í bataferli eftir áföll. Áhersla lögð á tengsl andlegrar og líkamlegrar heilsu og einfaldar
aðferðir til að efla hvort tveggja. Umræður, spurningar og svör í 20 mínútur.
Fyrirlesturinn verður haldinn bæði í Borgarnesi og á Akranesi.
Borgarnes kl. 14-15 (nánari staðsetnig auglýst síðar)
Akranes kl. 16:30-17:30 í Fjöliðjunni Akranesi
Námskeiðið er starfsfólki að kostnaðarlausu
og ekki er greitt fyrir þátttöku .
Skráing er hjá Huldu, netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 893 9280 og þurfa skráningar að berast fyrir 25. Mars n.k.
Fræðslunefnd Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Vesturlandi
___________________________________________________________________________ |