Sólskinsdrengurinn

Mynd sem Svæðisskrifstofa Vesturlands hvetur alla til að sjá. Verður frumsýnd í Háskólabíó föstudaginn 9. janúar 2009. Heimasíða myndarinnar er: http://solskinsdrengur.is/index.html

 

 
Gleðileg Jól

joli.png

Óskum öllum þjónustuþegum, samstarfsfólki, ásamt starfsmönnum og fjölskyldum þeirra innilega gleðilegra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum  ánægjulegt samstarf á líðandi ári.

 
Jólaball Skammtímavistana á Vesturlandi
Jólaball skammtímavistana var haldið í Valfelli þann 7 desember.

Þar buðu börnin foreldrum sýnum og systkinum á jólaball sem haldið var í fyrsta skipti svo vitað sé. Börnin sáu að mestu leiti um undirbúninginn sjálf. Þau voru öll dugleg við að baka piparkökur og mála þær í jólalitum. Börnin perluðu skraut á jólatréð og skreyttu salinn fyrir ballið.

Jólaballið tókst mjög vel og var margt af fólki. Auðvitað var sungið og dansað í kringum jólatréð og þar sá Steinunn Pálsdóttir um tónlist og söng. Stekkjastaur og Kjötkrókur komu í heimsókn og heilsuðu börnunum.

Guðrún Kristinsdóttir forstöðumaður vill koma á framfæri þakklæti til starfsmanna, barna, foreldra, félagsstarfi Mímis, Steinunni Pálsdóttur og síðast en ekki síst Stekkjastaur og Kjötkrók.
 

Nýir framkvæmdastjórar hefja störf

Þann 1. september 2008 tóku Klara Bragadóttir og Guðmundur Páll Jónsson við sem framkvæmdastjórar hjá Svæðisskrifstofu Vesturlands.

Nánar...
 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 Næsta > Endir >>

Síða 3 af 3