Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra.

 

Svæðisskrifstofur málefna fatlaðra á Austurlandi, Reykjanesi, Reykjavík, Suðurlandi, Vestfjörðum og á Vesturlandi vekja athygli á rétti fólks til að sækja um styrki  skv. 27. grein laga nr. 59/1992 um málefni fatlaðra  og reglugerðar nr. 550/1994 um styrki vegna  námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðra.

 

 Skv. reglugerðinni er heimilt  að veita  styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur samkvæmt ákvæðum annarra laga, enda teljist námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa  í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.

Umsóknir skulu berast á þar til gerðu eyðublaði félagsmálaráðuneytis ásamt greinargerð og ljósriti af örorkuskírteini, til svæðisskrifstofa í hverju umdæmi en þar er hægt að fá umsóknareyðublöð og allar nánari upplýsingar.

* Hægt að sækja um á heimasíðu .

 

Umsóknarfrestur er til 20. September 2008.

Umsóknarfrestur er til 20. september 2009

 

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Suðurlandi, Eyravegi 25, 800 Selfossi

sími: 480 6900 /  Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.     *  veffang:  www.smfs.is

 

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Austurlandi, Tjarnarbraut 39 b, 700  Egilsstöðum sími:470 0100 /  Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.      *  veffang:  www.saust.is         

 

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Reykjanesi, Fjarðargötu 13, 220 Hafnarfirði

sími: 525 0900 /  Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.        *   veffang: www.smfr.is

 

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Reykjavík, Síðumúla 39, 108 Reykjavík

sími 533 1388 /  Netfang:  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.    *  veffang: www.ssr.is

 

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Vestförðum, Hafnarstræti 1, 400 Ísafirði

sími: 456 5224 /  Netfang:  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.    *  veffang: www.svest.is

 

Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Vesturlandi, Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnesi,

sími: 433 1700 /  Netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.   veffang: www. sfvesturland.is

                                                                                                                                 

 

Svæðsskrifstofan vil benda á nýútkomið fræðsluefni  um fatlanir.

 EINHVERFA - HVAÐ ER TIL RÁÐA?

Á skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra er til sölu fræðslumynd á dvd um úrræði sem í boði eru fyrir börn og unglinga með röskun á einhverfurófi.  Sérfræðingar frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins fjalla um greiningarferlið og lýsa helstu þjálfunaraðferðum í leik- og grunnskólum.  Tekin eru viðtöl við foreldra og sýndar myndir af börnum við nám og leik.  Einnig er greint frá starfsemi Umsjónarfélags einhverfra.  Verðið á disknum er kr. 1500,-.  Þessi mynd var sýnd á aðalfundi félagsins í vor.

Nýútkomin bók um þroskahömlun barna.


Í bókinni er fjallað um þroskahömlun barna, orsakir, eðli og leiðir til íhlutunar. Sjónum er beint að eðlilegum þroskaferli barna, helstu orsökum þroskahömlunar, alþjóðlegum skilgreiningum og greiningu á þroskahömlun og helstu erfiðleikum sem þessi fötlun getur haft í för með sér fyrir hinn fatlaða og fjölskyldu hans. Íhlutun er gerð ítarleg skil, allt frá snemmtækri íhlutun frá fyrstu árum ævinnar til skólagöngu í grunn- og framhaldsskólum. Einnig er fjallað um stuðning við fjölskyldur barna með þroskahömlun.

Tuttugu höfundar rita í bókina. Þar er um að ræða sérfræðinga með margháttaða sérhæfingu sem á einn eða annan hátt tengjast málefnum fatlaðra barna, til dæmis starfsfólk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, kennara við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og sérfæðinga á Barnaspítala Hringsins og Miðstöð heilsuverndar barna. Ritstjórar eru frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Bókin er rúmar 200 síður. Teikning á kápu er eftir Sigrúnu Eldjárn
Ritstjórn: Bryndís Halldórsdóttir, Jóna G. Ingólfsdóttir, Stefán J. Hreiðarsson og Tryggvi Sigurðsson,

Útgefandi er Háskólaútgáfan í samvinnu við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins

Bókin fæst í öllum helstu bókabúðum.

 Svæðisskirfstofan vil benda foreldrum á námskeið Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Námskeiðsgjaldi fyrir foreldra er mjög stillt í hóf eða fellt miður. Því hvetjum við alla aðstandur til að nýta sér þetta tilboð.

Nafn

Dagsetning

Staðsetning

Skráningartímabil

Einhverfa og aðrar raskanir á einhverfurófi

16.sep. 2009

Gerðuberg

Opið

Ráðagóðir kennarar

22.sep. 2009

Gerðuberg

Opið

Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir

23.sep. 2009

Gerðuberg

Opið

Skipulögð kennsla

29.sep. - 1.okt. 2009

Gerðuberg

Opið

Félagsfærni og þátttaka 6 – 11 ára barna með Aspergersheilkenni

7.okt. 2009

Gerðuberg

24.ágú. - 30.sep. 2009

Tákn með tali

15.okt. 2009

Gerðuberg

Opið

Aspergersheilkenni - framhaldsnámskeið

21.okt. 2009

Gerðuberg

24.ágú. - 14.okt. 2009

Aspergersheilkenni - framhaldsnámskeið

11.nóv. 2009

Gerðuberg

24.ágú. - 4.nóv. 2009

Atferlisþjálfun fyrir börn með einhverfu

12.nóv. - 13.nóv. 2009

                                                                                                                                                                                      
 

Kardemommubærinn

 

img_3286.jpg

 

Krakkarnir í Holti gerðu sér glaðan dag 21. mars síðastliðinn þegar þau fóru út að borða og skeltu sér í leikhús. Ákveðið var að fara á Kardimommubærinn sem er sýndur í Þjóðleikhúsinu. Þar var vel tekið á móti þeim og fengu þau að hitta leikara og skoða sig um á leiksviðinu. Áður en haldið var heim var þessi mynd tekin af öllum hópnum. Krakkarnir og starfsfólk Holts þakka góðar og hlýlegar móttökur. Og krakkarnir mæla með sýningunni, hún var mjög skemmtileg.  

 


 

 

Leiðbeiningar vegna skattframtals stuðningsforeldra.

 

Þær upplýsingar sem að hér birtast eru teknar saman af Barnasviði Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og er birt með þeirra leyfi. (ssr.is)

Ahugið að upphæðir í dæmum um fæði eru tölur frá leiðbeiningum í fyrrra.

Ágæta stuðningsforeldri,

Vegna skattframtals fyrir árið 2008.

Varðandi framtalgerð er mikilvægt er að kynna sér vel leiðbeiningar Ríkisskattstjóra sem fylgja skattframtalinu. Líta skal á þetta bréf sem leiðbeiningar um útfyllingu, en vísað á Skattstjórann í Reykjavík og Ríkisskattstjóra varðandi fyrirspurnir og frekari útskýringar.

Einkum eru tvær leiðir farnar við framtal greiðslna til stuðningsfjölskyldna. Hægt er að kalla þetta leið 1) og leið 2). Fleiri virðast fara leið 2) í framtalsmálum.

Leið 1)

Greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna teljast að fullu til skattskyldra tekna en á móti má færa til frádráttar beinan kostnað vegna umönnunar og dvalar barnanna, enda sé lögð fram sundurliðun um sannanlegan kostnað (sjá leiðbeiningarblað Ríkisskattstjóra). Með þessu er verið að segja að hægt sé að telja fram allan sannanlegan kostnað á móti þeim tekjum sem aflað er. Varðandi nánari útfærslu á þessu er vísað til skattstjóra.

Leið 2)

Í leiðbeiningum frá Ríkisskattstjóra kemur fram að í staðinn fyrir að gera grein fyrir sannanlegum kostnaði sé heimilt að draga frá kostnað vegna fæðis (A) og annars kostnaðar (B) frá heildargreiðslum. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra ber fyrst að draga frá fæðiskostnað og síðan annan kostnað.

(A) Fæðiskostnað er hægt að draga frá greiðslum samkvæmt ákveðnum viðmiðunum. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra er fæðiskostnaður reiknaður 110 kr. fyrir morgunmat/hressingu (kaffi) og 220 kr. fyrir mat (hádegismat/kvöldmat). Fjöldi hressinga og matartíma getur verið mismunandi. Ef miðað er við 4 hressingar (440 kr.) og 2 matartíma (440) þá væri fæðiskostnaður vegna barns/unglings á sólarhring 880 kr. Til að fá út heildarfrádrátt vegna fæðis þarf að margfalda þessa upphæð með fjölda sólarhringa sem barnið hefur dvalið hjá viðkomandi stuðningsfjölskyldu á árinu.

(B) Sem frádrátt í stað sannanlegs viðhaldskostnaðar húsnæðis og húsbúnaðar, kostnaðar vegna hreinlætisvara, föndurvara, bóka o.þ.h. má færa 25% af tekjum, öðrum en tekjum vegna fæðissölu, en þó aldri hærri fjárhæð en innheimt er vegna þessara liða samkvæmt gjaldskrá.

Dæmi:

Jón er stuðningsfjölskylda 2 sólarhringa á mánuði í 12 mánuði á ári (alls 24 sólarhringar). Hann fær greitt samkvæmt greiðsluflokk 2 (kr. 11.300,- á sólarhr.). Hægt er að fá upplýsingar um heildargreiðslur fyrir árið hjá Ríkisbókhaldi. Jón gerir ráð fyrir 4 hressingum og 2 máltíðum á sólarhring.

Heildargreiðsla:                                      271.200 kr.

Fæðiskostnaður:                                    - 12.120 kr.

259.080 kr.

 

259.080 kr.

Annar kostnaður 20 %                           -  45.240 kr.

Skattskyldar tekjur Jóns                         213.840 kr.

Þessar 213.840  kr. eru því skattskyldar tekjur Jóns sem stuðningsfjölskylda og færast inn á framtalseyðublaðið.

Eins og áður sagði er mikilvægt að hver kynni sér leiðbeiningarrit Ríkisskattstjóra og leiti upplýsinga hjá skattsstofu ef þörf krefur.

Gangi ykkur vel.

Með bestum kveðjum,

f.h. Svæðisskrifsstofu málefna fatlaðra í Reykjavík

Birt með leyfi Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og kann Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi bestu þakkir fyrir það.

 

Fræðslukvöld fyrir afa og ömmur fatlaðra barna

 

FFA – fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur stendur fyrir röð að fræðslukvöldum fyrir afa og ömmur fatlaðra barna.
Öll fræðslukvöldin verða haldin að Háaleitisbraut 13, 4 hæð og hefjast kl. 20:00 og lýkur kl. 22:00.
9. febrúar             Starfsemin á Háaleitisbraut 13
23. febrúar          Hvað gerir Greiningarstöð?
Þjónusta TR við fjölskyldur fatlaðra barna.
9. mars                 Svæðisskrifstofur hvað bjóða þær uppá
23. mars               Tjáskipti – hvaða aðferðir eru til?
6. apríl                 Að vera afi og amma fatlaðs barns

Hugmyndin er að á hverju fræðslukvöldi verði stutt innlegg / kynningar og í framhaldi af því kaffi og spjall.

Þátttökugjald er ekkert en þátttöku á fyrsta kvöldið 9. febrúar þarf að tilkynna í síðasta lagi 8. febrúar í síma 588-9390 eða á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Að FFA standa: Ás styrktarfélag, Landssamtökin Þroskahjálp, Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra og Sjálfsbjörg landssambandið.

 
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 Næsta > Endir >>

Síða 2 af 3