Leiðbeiningar vegna skattframtals stuðningsforeldra.
Þær upplýsingar sem að hér birtast eru teknar saman af Barnasviði Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og er birt með þeirra leyfi. (ssr.is) Ahugið að upphæðir í dæmum um fæði eru tölur frá leiðbeiningum í fyrrra. Ágæta stuðningsforeldri, Vegna skattframtals fyrir árið 2008. Varðandi framtalgerð er mikilvægt er að kynna sér vel leiðbeiningar Ríkisskattstjóra sem fylgja skattframtalinu. Líta skal á þetta bréf sem leiðbeiningar um útfyllingu, en vísað á Skattstjórann í Reykjavík og Ríkisskattstjóra varðandi fyrirspurnir og frekari útskýringar. Einkum eru tvær leiðir farnar við framtal greiðslna til stuðningsfjölskyldna. Hægt er að kalla þetta leið 1) og leið 2). Fleiri virðast fara leið 2) í framtalsmálum.
Leið 1) Greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna teljast að fullu til skattskyldra tekna en á móti má færa til frádráttar beinan kostnað vegna umönnunar og dvalar barnanna, enda sé lögð fram sundurliðun um sannanlegan kostnað (sjá leiðbeiningarblað Ríkisskattstjóra). Með þessu er verið að segja að hægt sé að telja fram allan sannanlegan kostnað á móti þeim tekjum sem aflað er. Varðandi nánari útfærslu á þessu er vísað til skattstjóra.
Leið 2) Í leiðbeiningum frá Ríkisskattstjóra kemur fram að í staðinn fyrir að gera grein fyrir sannanlegum kostnaði sé heimilt að draga frá kostnað vegna fæðis (A) og annars kostnaðar (B) frá heildargreiðslum. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra ber fyrst að draga frá fæðiskostnað og síðan annan kostnað.
(A) Fæðiskostnað er hægt að draga frá greiðslum samkvæmt ákveðnum viðmiðunum. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkisskattstjóra er fæðiskostnaður reiknaður 110 kr. fyrir morgunmat/hressingu (kaffi) og 220 kr. fyrir mat (hádegismat/kvöldmat). Fjöldi hressinga og matartíma getur verið mismunandi. Ef miðað er við 4 hressingar (440 kr.) og 2 matartíma (440) þá væri fæðiskostnaður vegna barns/unglings á sólarhring 880 kr. Til að fá út heildarfrádrátt vegna fæðis þarf að margfalda þessa upphæð með fjölda sólarhringa sem barnið hefur dvalið hjá viðkomandi stuðningsfjölskyldu á árinu.
(B) Sem frádrátt í stað sannanlegs viðhaldskostnaðar húsnæðis og húsbúnaðar, kostnaðar vegna hreinlætisvara, föndurvara, bóka o.þ.h. má færa 25% af tekjum, öðrum en tekjum vegna fæðissölu, en þó aldri hærri fjárhæð en innheimt er vegna þessara liða samkvæmt gjaldskrá.
Dæmi:
Jón er stuðningsfjölskylda 2 sólarhringa á mánuði í 12 mánuði á ári (alls 24 sólarhringar). Hann fær greitt samkvæmt greiðsluflokk 2 (kr. 11.300,- á sólarhr.). Hægt er að fá upplýsingar um heildargreiðslur fyrir árið hjá Ríkisbókhaldi. Jón gerir ráð fyrir 4 hressingum og 2 máltíðum á sólarhring.
Heildargreiðsla: 271.200 kr. Fæðiskostnaður: - 12.120 kr. 259.080 kr.
259.080 kr. Annar kostnaður 20 % - 45.240 kr. Skattskyldar tekjur Jóns 213.840 kr.
Þessar 213.840 kr. eru því skattskyldar tekjur Jóns sem stuðningsfjölskylda og færast inn á framtalseyðublaðið. Eins og áður sagði er mikilvægt að hver kynni sér leiðbeiningarrit Ríkisskattstjóra og leiti upplýsinga hjá skattsstofu ef þörf krefur.
Gangi ykkur vel.
Með bestum kveðjum, f.h. Svæðisskrifsstofu málefna fatlaðra í Reykjavík Birt með leyfi Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík og kann Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi bestu þakkir fyrir það. |
