Svæðsskrifstofan vil benda á nýútkomið fræðsluefni  um fatlanir.

 EINHVERFA - HVAÐ ER TIL RÁÐA?

Á skrifstofu Umsjónarfélags einhverfra er til sölu fræðslumynd á dvd um úrræði sem í boði eru fyrir börn og unglinga með röskun á einhverfurófi.  Sérfræðingar frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins fjalla um greiningarferlið og lýsa helstu þjálfunaraðferðum í leik- og grunnskólum.  Tekin eru viðtöl við foreldra og sýndar myndir af börnum við nám og leik.  Einnig er greint frá starfsemi Umsjónarfélags einhverfra.  Verðið á disknum er kr. 1500,-.  Þessi mynd var sýnd á aðalfundi félagsins í vor.

Nýútkomin bók um þroskahömlun barna.


Í bókinni er fjallað um þroskahömlun barna, orsakir, eðli og leiðir til íhlutunar. Sjónum er beint að eðlilegum þroskaferli barna, helstu orsökum þroskahömlunar, alþjóðlegum skilgreiningum og greiningu á þroskahömlun og helstu erfiðleikum sem þessi fötlun getur haft í för með sér fyrir hinn fatlaða og fjölskyldu hans. Íhlutun er gerð ítarleg skil, allt frá snemmtækri íhlutun frá fyrstu árum ævinnar til skólagöngu í grunn- og framhaldsskólum. Einnig er fjallað um stuðning við fjölskyldur barna með þroskahömlun.

Tuttugu höfundar rita í bókina. Þar er um að ræða sérfræðinga með margháttaða sérhæfingu sem á einn eða annan hátt tengjast málefnum fatlaðra barna, til dæmis starfsfólk Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins, kennara við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og sérfæðinga á Barnaspítala Hringsins og Miðstöð heilsuverndar barna. Ritstjórar eru frá Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins og menntavísindasviði Háskóla Íslands.

Bókin er rúmar 200 síður. Teikning á kápu er eftir Sigrúnu Eldjárn
Ritstjórn: Bryndís Halldórsdóttir, Jóna G. Ingólfsdóttir, Stefán J. Hreiðarsson og Tryggvi Sigurðsson,

Útgefandi er Háskólaútgáfan í samvinnu við Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins

Bókin fæst í öllum helstu bókabúðum.

 Svæðisskirfstofan vil benda foreldrum á námskeið Greiningar- og ráðgjafarstöðvar ríkisins. Námskeiðsgjaldi fyrir foreldra er mjög stillt í hóf eða fellt miður. Því hvetjum við alla aðstandur til að nýta sér þetta tilboð.

Nafn

Dagsetning

Staðsetning

Skráningartímabil

Einhverfa og aðrar raskanir á einhverfurófi

16.sep. 2009

Gerðuberg

Opið

Ráðagóðir kennarar

22.sep. 2009

Gerðuberg

Opið

Aspergersheilkenni og svipaðar raskanir

23.sep. 2009

Gerðuberg

Opið

Skipulögð kennsla

29.sep. - 1.okt. 2009

Gerðuberg

Opið

Félagsfærni og þátttaka 6 – 11 ára barna með Aspergersheilkenni

7.okt. 2009

Gerðuberg

24.ágú. - 30.sep. 2009

Tákn með tali

15.okt. 2009

Gerðuberg

Opið

Aspergersheilkenni - framhaldsnámskeið

21.okt. 2009

Gerðuberg

24.ágú. - 14.okt. 2009

Aspergersheilkenni - framhaldsnámskeið

11.nóv. 2009

Gerðuberg

24.ágú. - 4.nóv. 2009

Atferlisþjálfun fyrir börn með einhverfu

12.nóv. - 13.nóv. 2009