|
Námskeið um Andlega sjálfsvörn 8.apríl 2010 Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Vesturlandi ætlar að bjóða starfsfólki sínu á fyrirlestur um Andlega sjálfsvörn 8. apríl n.k. Fyrirlesari er Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar. Fyrirlesturinn er 40 mínútna langur þar sem farið er yfir gagnlegar leiðir til að styrkja geðheilsu, forvarnir gegn geðheilsubresti og grundvallaratriði í bataferli eftir áföll. aðferðir til að efla hvort tveggja. Fyrirlesturinn verður haldinn bæði í Borgarnesi og á Akranesi. Borgarnes kl. 14-15 (nánari staðsetnig auglýst síðar) Akranes kl. 16:30-17:30 í Fjöliðjunni Akranesi Námskeiðið er starfsfólki að kostnaðarlausu og ekki er greitt fyrir þátttöku . Skráing er hjá Huldu, netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 893 9280 og þurfa skráningar að berast fyrir 25. Mars n.k. Fræðslunefnd Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra Vesturlandi ___________________________________________________________________________ |
